24. ágúst 2011 eftir Valur
Sökum þess að vefþjónninn minn, sem malar kyrrlátlega heima í skáp, er orðinn gamall og veikburða, ákvað ég að flytja bloggið mitt á traustan hýsingarstað úti í heimi. Upphaflega setti ég hann upp til þess að geta fiktað í Linux og vefkerfum en það eru orðin einhver ár síðan ég uppfærði hugbúnaðinn síðast. Svo tölvan mun drepast bráðum.
Hins vegar vildi ég ekki fórna því litla sem ég hef ritað á þessum vettvangi, svo ég ákvað að flytja þetta góða efni, svo það fái lifað áfram. Setti meira að segja upp sama útlit og var á gamla þjóninum mínum og allir tenglar virka ennþá. Þannig að kannski sjá einhverjir engan mun
En ég lofa ekkert að vera duglegri að blogga…